
Hráefni
- Kjúklingabringur, 1 kg
- Olía, 50 ml
- Laukur, 1 stk
- Hvítlaukur, 5 rif
- Cumin, 2 tsk
- Kóríanderkrydd, 2 tsk
- Salt, 2 tsk
- Túrmerik, 2 tsk
- Engiferduft, 1 tsk
- Chilikrydd, ½ tsk
- Garam masala, 1½ tsk
- Svartur pipar, 1 tsk
- Hakkaðir tómatar, 1 dós
- Vatn, 450 ml
- Kartöflur, 2 stk
- Kjúklingakraftur, 1 msk
- Grjón, 200 ml
Undirbúningur
Kjúklingur
- Grófsaxa 1 stk lauk
- Pressa 5 rif af hvítlauk.
- Gera kryddblöndu: 1 tsk cumin, 2 tsk kóríanderkrydd, 1 tsk salt, 1 tsk túrmerik, 1 tsk engiferduft, ½ tsk chilikrydd og 1 tsk svartur pipar.
- Skera tvær kartöflur í munnbita
- Skera 1 kg af kjúklingabringum í munnbita.
Grjón
- Setja 400 ml af vatni í pott, ásamt 1 tsk af salti og 1 tsk af túrmerik.
Aðferð
Kjúklingur
- Hita 50 ml af olíu á miðlungshita í steypujárnspotti.
- Mýkja lauk í nokkrar mínútur.
- Hræra hvítlauk út í og malla í mínútu.
- Næst fer kryddblandan út í. Blanda vel saman og gefa þessu aðra mínútu.
- Nú fer kjúklingurinn í pottinn. Velta vel upp úr blöndunni og malla í nokkrar mínútur.
- Bæta einni dós af hökkuðum tómötum, 50 ml af vatni, 1½ tsk af garam masala og 1 msk af kjúklingakrafti út í. Hræra vel saman og ná suðu.
- Að lokum fara kartöflurnar út í. Setja lok á pottinn, lækka í miðlungslágan hita og malla í ca 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
Grjón
- Kveikja undir grjónapotti á hæstu stillingu og ná upp suðu undir loki.
- Setja 200 ml af grjónum í pottin, lækka í lágan hita og láta malla undir loki í 10 mínútur.
- Slökkva undir potti, en láta standa undir loki í 10 mínútur í viðbót.
