Hraunbraut

1984 til 1986

Finna mynd

Ég á engar skýrar minningar frá þessum tíma, en lengi var til viðtal við mig á kasettu frá sept/okt 1986. Þaðan kemur elsta tilvitnun mín:

Nei, Osti er súll á móti

Það er því greinilegt að ég var aðdáandi Bjartmars áður en platan “Í fylgd með fullorðnum” kom út.

Ég þekkti bílategundir mjög vel, en auk þess var ég mikill aðdáandi U2.
Við áttum tónleikaupptöku af Red Rocks á VHS sem ég horfði á endalaust, en þessi spóla týndist eða var tekið yfir hana þegar ég var mjög ungur. Þegar ég sá þessa klippu upp úr aldamótum, þá mundi ég vel eftir öllum töktum og hreyfingum. Mínar allra fyrstu minningar eru semsagt þessir tónleikar.

Bjó í Vestmannaeyjum í skamman tíma á vertíð.

Scroll to Top