
Legend er 42 ára í dag!
Ein mest selda safnplata allra tíma, mest selda reggí plata allra tíma og fyrsta safnplatan sem ég birti sem afmælisplötu. Platan og listamaðurinn er af þeirri stærðargráðu að flestir þekkja megnið af þessu.
Lauslega er hægt að tala um að platan byrji á krútt- og huggulegheitum, þaðan í baráttusöngva og endar á andlegu nótunum.
Hlið 1 á plötu (One á bakhlið)
- Is This Love
Notalegt ástarlag. - No Woman No Cry
Live flutningur. Þetta lag er semsagt þekktara í live flutningi, en stúdíóútgáfu. - Could You Be Loved
Samið í flugvél og minnir mig á Ibiza. - Three Little Birds
Ég lærði þetta á gítar nýlega. - Buffalo Soldier
Frumbyggjar ameríku kölluðu svarta Bandaríkjahermenn þessu nafni. Baráttusöngur sem kom út eftir dauða Marleys. - Get Up Stand Up
Annar baráttusöngur. - Stir It Up
Óljóst hvort hér sé verið að ræða ástaratlot eða kannabisreykingar.
Hlið 2 á plötu (Two á bakhlið)
- One Love / People Get Ready
Hippalykt af þessu. - I Shot the Sheriff
Það hefur líklega hjálpað til varðandi vinsældir að Eric Clapton coveraði þetta. - Waiting in Vain
Löng bið eftir mögulega óendurgoldinni ást - Redemption Song
Síðasta lag á síðustu plötu sem kom út á meðan hann lifði. Meira í stíl nafna hans Dylan, heldur en reggí. - Satisfy My Soul
Ekkert drama, bara afslappað reggí um að vera í jafnvægi. - Exodus
Samanburður á Móse í eyðimörkinni og rastafara í leit að frelsi. - Jamming
Djamm
